SKÁLDSAGA Á ensku

Around the World in Eighty Days

Sagan Around the World in Eighty Days eftir snillinginn Jules Verne kom fyrst út sem framhaldssaga árið 1872 og á bók 1873. Hún segir frá auðugum enskum hefðarmanni, Phileas Fogg sem gerir veðmál við nokkra félaga klúbbfélaga um að hann geti ferðast í kringum hnöttinn á áttatíu dögum. Sér til halds hefur Fogg svo hinn dásamlega þjón sinn, Passepartout.

Þegar Verne skrifaði söguna var hann á nokkuð erfiðum stað í lífi sínu. Á þessum tíma voru Frakkar í stríði við Rússa og hann var kvaddur í herinn um tíma. Þá átti hann í nokkrum fjárhagslegum þrengingum, hafði ekki fengið greidd höfundarlaun fyrir síðustu bækur sínar; faðir hans lést nokkru áður og þá hafði Verne orðið vitni að opinberri aftöku sem fór illa í hann. Það eina sem hann fann sig í var að skrifa söguna en hann fékk hugmyndina eitt kvöld er hann sat á kaffihúsi og var að lesa blöðin.

Á þessum árum höfðu orðið töluverðar tækniframfarir á faratækjum sem gerði aukinn hraða í samgöngum mögulegan og Verne sem fylgdist vel með nýjungum sá þarna leik á borði. Það er til marks um vinsældir og trúverðugleika sögunnar að þegar fyrstu kaflar hennar birtust sem framhaldssaga í tímariti héldu margir að um raunverulegan atburð væri að ræða og gerðu sín eigin veðmál um hvort að þetta mundi takast hjá herra Fogg.


HÖFUNDUR:
Jules Verne
ÚTGEFIÐ:
2016
BLAÐSÍÐUR:
bls. 210

AÐrar bÆkur
SEM ER VERT AÐ SKOÐA :